(2025)

Photos


Testimonials
“"...Þau Jón Gunnar Vopnfjörð og Heiðdís Hlynsdóttir glansa í hlutverkum Óberons og Títaníu. Sérlega gaman er að vaxandi óþægindum Óberons yfir erótískri hamingju frúarinnar í örmum vefarans í asnagervinu, nokkuð sem ég hef ekki séð skýrar komið til skila..."”
“"...Jón Gunnar og Heiðdís eru einstaklega glæsilegt par, hvort sem er í mannheimum eða álfheimum; Jón Gunnar var lúmskur og þó öflugur sem yfirvald; Heiðdís var frábær undir áhrifum galdranna og einlæglega miður sín þegar hún áttar sig á að hún hefur gert sig að fífli. Rakel Ýr naut þess greinilega með sál og líkama að leika hið dýrlega hlutverk Búkka og var einstaklega álfsleg – eiginlega eins og fiður á sviðinu, svo nett og létt, og samspil þeirra Jóns Gunnars var sérlega sjarmerandi..."”
“"...Mæli eindregið með þessari sýningu. Það er gríðarlega gaman að fylgjast með hópi ungra leikara kljást við verðugt viðfangsefni í sýningu sem gengur upp að öllu leyti. Hér er með leikhústöfrum sköpuð fjölbreytt og umfram allt sprenghlægileg sýning. Frábær þýðing Þórarins Eldjárn sannar að það er kostur við þýðingar á gamanleikjum Shakespeares að þýðandinn sé bæði skáldmæltur og hafi húmor..."”
“"...Leikhópurinn er ungur og um helmingurinn að stíga sín fyrstu skref í íslensku atvinnuleikhúsi í þessari sýningu. Hópurinn stendur þó vel undir verkinu og leikarar fá að njóta sín í hlutverkum sínum. Þau ráðast því ekki á garðinn þar sem hann er lægstur og metnaðurinn sem settur hefur verið í sýninguna fer ekki fram hjá nokkrum leikhúsgesti..."”